ZODIAC OPEN
Markaðsleiðandi
Þú ert aðdáandi alls kyns vatnaíþrótta, og þegar þú ferð í frí er það algjör höfuðverkur að þurfa að velja á milli veiðistanganna, brettisins og töskum barnanna sem eru fullar af strandleikföngum… við þekkjum það öll.
Þess vegna hefur Zodiac Open línan verið markaðsleiðandi í yfir tuttugu ár. Hún er hönnuð fyrir fjölbreyttar dagsferðir og býður upp á rúmgott geymslurými fyrir allt sem fylgir góðum degi á sjónum, hvort sem það eru leikföng, íþróttabúnaður eða veiðigræjur.
Allir bátar í Open-línunni endurspegla sama kjarnann: sportlega hönnun, stöðugleika, hámarksnotagildi og frábæra sjóhæfni. Hvort sem þú ert á ferð með fjölskyldunni, vinahópnum eða einn með stangirnar, þá býður Zodiac Open línan upp á pláss, öryggi og fjölhæfni sem gerir hverja ferð að ánægjulegri upplifun.
Hágæða efni
Zodiac bátar eru þekktir fyrir framúrskarandi gæði, öryggi og endingartíma. Við framleiðslu bátanna eru eingöngu notuð hágæða efni sem hönnuð eru til að standast erfiðar aðstæður á sjó, hvort sem um er að ræða daglega notkun, atvinnunotkun eða ævintýri við krefjandi aðstæður.
Neoprene Hypalon
Neoprene-Hypalon er samsetning af tveimur hágæða gúmmítegundum: neoprene (CR) og Hypalon (CSM). Þetta efni er aðallega notað í atvinnu-RIB-báta og björgunarbáta vegna einstakrar endingar, vörn gegn UV-geislun og slitþols.
PVC Strongan™ Duotex™
Strongan™ Duotex™ er sérhannað efni frá Zodiac sem sameinar styrk, endingu og léttleika. Efnið er þróað sérstaklega fyrir slöngubáta og veitir góða vörn gegn sliti, UV-geislun, ásamt því að vera auðvelt í viðhaldi og henta vel til daglegrar notkunar.
Stærð sem hentar þínum þörfum
Zodiac Open línan er fáanleg í fjórum stærðum, sem bjóða upp á ólíka eiginleika og útfærslur til að mæta mismunandi þörfum notenda.
Þú getur valið þann stíl og búnað sem hentar þér best, allt frá litaskema og innréttingum til aukabúnaðar fyrir vatnaíþróttir, veiði eða afslappaðar sjóferðir.
Fjöldi
Bátar fyrir allt að 12 manns
Stærð
Open línan er fáanleg í allt að 6.1 m á lengd
Notkun
Ferða- og afþreyingarbátar, Vatnaskíðabátar, Sportbátar, Wakeboard-bátar & Veiðibátar
Niðurhal
Zodiac á Íslandi 2025